Mér er sama þótt þú getir sett þig í 96 kynlífsstellingar, kunnir Kama Sutra utan að og fjarlægt stein úr vínberi með tungunni einni saman (allt í lagi, þetta með vínberið er svolítið flott). Staðreyndin er sú að þú verður aldrei alvöru kynlífsséni ef þú stressar þig meira en þú stynur þegar allt er á fullu.
"Hún þolir ekki að gera það á hliðinni af því að þá finnst henni hún svo feit. Hún vill ekki vera ofan á af því að þá heldur hún að brjóstin á henni séu asnaleg. Hún bannar mér að horfa á rassinn á sér. Hvers vegna trúir hún ekki að ég elski líkama hennar eins og hann er? Ég sé ekki þessa galla sem hún talar um," segir vinur minn Ross. Flestar konur hafa endalausar áhyggjur af líkama sínum og það kemur ekki bara niður á sjálfstrausti þeirra heldur ekki síður möguleikum þeirra til að njóta kynlífs til fulls. Ótal rannsóknir hafa sýnt fram á að konur með lélega sjálfsmynd eru feimnari og tregari til að hafa frumkvæðið að kynlífi en þær sem eru sáttari við sjálfa sig og líkama sinn. Þær eru líka ragari við að reyna eitthvað nýtt eða tala um óskir sínar og þarfir í kynlífinu. Staðreyndin er hins vegar sú að karlmenn eru voða lítið að spá í hvernig hlutirnir líta út þegar hæst stendur í stönginni og sjá okkur þar að auki í allt öðru ljósi en við sjálfar.
Of mikill ákafi eða reynsla? "Úps! Best að vera ekki of áköf svo hann haldi nú ekki að ég hafi gert þetta áður… bara þrjátíu og tveggja ára gömul." Í alvöru! Hvaðan koma svona pælingar? Byrjum á uppeldinu. 63% kvenna segja viðhorf sitt til kynlífs fyrst og fremst hafa mótast af afstöðu foreldra þeirra. Af þessum hópi sögðust 66% hafa fengið neikvæða afstöðu til kynlífs í arf. Löngun til kynlífs vekur þeim sektarkennd og enn verr líður þeim ef þær láta það eftir sér. Þú skalt því prísa þig sæla(n) ef foreldrar þínir fræddu þig um kynlíf á opinn og jákvæðan hátt. En foreldrar eru ekki einir um að predika að kynlíf sé eitthvað sem karlar megi sækjast eftir en konur ekki. Samfélagið innrætir okkur frá blautu barnsbeini að góðar stelpur láti ganga á eftir sér. Þeir sem eiga stranga og mjög trúaða foreldra fá oftar en ekki þá einu hugmynd um kynlíf að það sé slæmt og þar af leiðandi eitthvað sem ber að forðast. Hvaða smákrakki sem er veit líka hvað orðið dræsa þýðir. Og drusla. Og mella. Ekki skrítið þótt við eigum stundum erfitt með að hrista af okkur sektarkenndina og njóta kynlífsins.
Tekið úr "Súpersex" bók eftir Tracey cos
Tracey cox hannar eigin vörulínu sem fæst hér hjá femin.is
Skoða allar greinar í Konan