Niðurstaða nýrrar breskrar rannsóknar var sú að pör eyða mun minna tíma saman en áður. Það er nútíma lifnaðarhættir sem eru
sökudólgurinn samkvæmt könnuninni. Við eyðum minni gæðatíma saman með þeim sem við elskum mest
Rannsóknin sem var gerð af Cancer Research UK sýnir að meira en hver fjórði eyðir daglega minna en 3 tímum saman með maka sínum og hver níundi eyðir minna en 2 tímum saman með makanum.
Nútíma lifnaðarhættir hafa ekki góð áhrif á pör og tíma þeirra saman. Þegar þátttakendur könnunarinnar voru spurðir hve miklum tíma þeir eyddu í samtöl við makann játuðu 1 af hverjum 8 að þeir eyddu minna en 10% af tímanum í að tala við makann. 6% staðhæfðu að þeir töluðu yfir höfuð ekki við makann sinn þegar þau væru saman með honum.
Og hvað eru þessar manneskjur að gera þegar þau tala ekki saman? Jú þau nota tímann í að senda SMS, hringja í vinina, vinna heima og/eða senda tölvupósta til vinanna.
Þessar skelfilegu niðurstöður hafa fengið Cancer Research UK til að hvetja öll pör til að eyða meiri gæðatíma saman. Pör gætu t.d eytt tíma í hreyfingu, skemmtun, út að borða, bíó, leikhús, göngutúra ofl ofl. Þetta gerir pörin glaðari og heilsuhraustari og eykur ánægjuna í sambandinu.
Skoða allar greinar í Sambönd