femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Innskráning
Netfang:

Lykilorð:           Gleymt lykilorð

Innskráning

Nýskráning



Spurðu ráðgjafana
Senda fyrirspurn





Áhugavert
Uppskriftir
Fyrirspurnir og svör
Spjallþræðir
Verslun
Hættum að reykja
Taktu prófið





Könnun
Hefur þú verslað í netverslun femin.is?

Nei

Senda mitt svar





Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf








Vandamál karla í kynlífi
Til baka Prenta grein Senda vinkonu Deila  
Höfundur femin.is
Flokkur Sex  /  Karlmenn
Það er ýmislegt sem getur haft áhrif á getu karlmanna til að stunda kynlíf. Allt byggir það á því að hinn líffræðilegi þáttur við limrisið sé í lagi. Hæfni limsins til að þenjast út og stífna byggir á því að limurinn er samsettur úr þremur ílöngum og sívölum þensluvefjum. Tveir þeirra liggja sitt hvoru megin ofan á limnum, en sá þriðji í raufinni á milli þeirra. Þvagrásin gengur svo langs í gegnum þennan þriðja þensluvef.
Utan um hvern þensluvef er þykk, en teygjanleg kápa. Að innan er þensluvefurinn allur í ótal mörgum blóðflæðihólfum, sem geta tekið í sig mikið blóð. Blóðstreymið eykst við það að slagæðar til limsins víkka út. Það slaknar á vöðvahaldi í vefjunum, svo að þeir geta þanist út og orðið þrýstnir með því að taka í sig blóðið. Loksins þegar limurinn er orðinn stífur, lokast fyrir blóðæðar, sem færa blóðið frá honum, svo að sama blóðið er að mestu leyti kyrrt í limnum.

Eftir höfðinu dansa limirnir.

Allt þetta ferli stjórnast af taugaboðum frá ósjálfráða taugakerfinu. Stjórnunin fer fram í tveimur taugamiðstöðvum. Önnur er staðsett hæst í mænunni alveg upp undir heilanum. Það eru kynferðis og ástarkenndir sem hafa áhrif á þessa stöð, þannig að tilhugsun mannsins ein t.d. um einhverja ákveðna konu getur haft þau áhrif að limurinn snöggrís.Hin miðstöðin er neðar í mænunni og tekur við taugaboðum frá líkamlegri snertingu, t.d. ef kynfærin eru ert og/eða strokin. En oftast gætir örvunaráhrifa samtímis frá báðum taugastöðvum.
Karlhormónið testosterón hefur síðan áhrif á kyngetu karla þó ekki sé alveg ljóst hversu sterk áhrif það hefur á limrisið sjálft, því karlmenn sem hafa verið vanaðir ( þ.e. eistun verið fjarlægð) geta náð risi á liminn þó þeir framleiði ekki lengur þetta karlhormón. Testósterón hefur þó verið gefið getulausum karlmönnum í gegnum tíðina með ágætis árangri fyrir tilkomu nýja lyfsins Viagra sem selst nú grimmt um nánast allan heim.

Hvað er getuleysi ?

Árið 1986 skrifaði danski læknirinn Peter Metz doktorsritgerð um þennan kvilla og notaði mjög einfalda skilgreiningu.
Getuleysi sagði hann. "Er það ef limurinn fær ekki nóg blóð í risinu, svo að hann verði nógu stífur til að stinga honum inn í skeiðina og ef hann helst ekki stífur þangað til sáðlát verður. "

Langvarandi getuleysi sækir einkum á miðalda og eldri menn og er talið að þess gæti hjá fjórða hverjum karlmanni sem kominn er yfir fimmtugt. Í þeim aldursflokki er algengast að kvillinn stafi af ólagi með slagæðarnar sem eiga að dæla blóði út í liminn. Þessi gerð getuleysis er einkum algeng hjá mönnum með blóðrásarerfiðleika niður í fæturna. Talið er að um 70-80% þeirra karlmanna sem þurfa æðaaðgerð til að bæta blóðrennsli til fóta eigi við vandamál er varðar limris að stríða sem lagast í flestum tilfellum þegar aðgerð hefur verið gerð til að bæta blóðflæði til fótanna.

Sálrænir kvillar , streyta, reykingar, óhófleg áfengisneysla og lyf ( t.d. þunglyndislyf og sum hjarta og blóðþrýstingslyf ) geta einnig haft áhrif á getu karla í kynlífi.

Halldóra Bjarnadóttir

Skoða allar greinar í Karlmenn

Til baka Prenta grein Senda vinkonu Deila 









Vinsælar vörur
Súpersex unaðsegg ...
Femmecup - álfabik...
Fit Pilates - DVD
Fonzie g-bletta
Astroglide natural...
Súpersex Rabbit Vibe
Svitapúðar - nýtt!
Casall hand, bak-o...
Breo Venture, Svart
Breo Skin, Svart



Spjallþræðir
lestin fór framh...
Félagsskapur









Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband