| Ráðgjafi |
|
Gígja Þórðardóttir |
Sæl ég er með hér stórt vandamál sem þú eða þið kanski gætuð hjálpað mér með.
Við erum par að nálgast þrítugsaldurinn og eigum eitt barn.
Ég er í kjörþyngd og er komin með ansi gott þol og styrk og fæ hrós frá maka mínum hægri vinstri sem er gott og blessað.
Málið er að nú er ég að verða ansi þreytt að vera alltaf að passa upp að vera flott fyrir hann á meðan hann, þessi elska, safnar fitu um sig allan, hann sem var svo flottur.Ég hef núna undanfarið ekki nent að stunda æfingar á meðan hann gerir ekkert. Skilurur hvað ég meina? Ég er ekki að biðja hann um að verða einhver kroppur bara að hann fari allavega niður í 100 kg (hann er 2 m á hæð) og líði vel með sig honum líður ekkert vel enda fæ ég alveg að kinnast skapsveiflunum hans. Þetta er að bitna á mér.
Ég hef talað um þetta við hann. Hann verður mjög fúll, hann talar mikið um að fara að hjóla eða fara að iðka einhverja heilsurækt og ég verð voða jákvæð og hugsa eina ferðina en að nú færi eitthvað að gerast,en ekkert gerist ég er búin að bíða í meira en 2 ár að eitthvað gerist sem mér leiðist.
Hann hefur farið á herbelife sem að virkaði en síðan fitnaði hann aftur og bara meira ef eitthvað er. Hvað get ég gert til að koma honum af stað. Það eina sem gerir hann glaðan er matur og kynlíf auðvita en ég er hætt að vilja það út af þessari fjandans fitu.
Hjálp!
Móðir hans talar um þetta stundum við mig þannig að það hafa fleiri áhyggjur af kallgreyinu :/
Sæl og takk fyrir skemmtilega fyrirspurn sem örugglega margir kannast við!
Kjarni málsins er að við breytum ekki öðrum en við getum haft áhrif á fólkið í kringum okkur með því að vera góðar fyrirmyndir, ræða málin, sýna skilning og hlusta. Þú minnist á nokkra þætti sem mig langar að taka út og ræða sérstaklega.
1)Þú segist vera komin með gott þol og styrk og að þú fáir hrós frá manninum þínum sem er mjög jákvætt. Eins talarðu um að þú sért að púla til að vera flott fyrir hann sem ég skil að vissu leiti því fólki líður vel með sjálft sig ef sjálfstraustið er gott og ekki er verra að finna að makinn girnist mann ennþá. EN.... fyrir hvern ertu að æfa? Þig eða hann? Þetta er grundvallarspurning því þú ættir að vera að huga að heilsunni til þess að ÞÉR líði betur og til þess að ÞÚ eigir eins gott líf og þú getur skapað þér. Ef það er grunnurinn þá stoppar þig ekkert, ekki einu sinni leti hans við ræktina. Skilurðu? Þú getur bara æft fyrir ÞIG og vonað að hann sjái hvað þér líður vel við að hreyfa þig og fylgi í kjölfarið.
2)Hefurðu rætt við manninn þinn um það hvernig honum líði? Hvað það sé sem stoppi hann í að taka líf sitt tökum og huga að heilsunni? Þú gefur svolítið í skyn að honum líði ekkert of vel með aukakílóin og að hann sé skapstór og sé alltaf á leiðinni að byrja í ræktinni. Ef þú hefur ekki nú þegar sest niður með honum í rólegheitunum, án fordóma, predikana eða væntinga þá mæli ég með að þú gerir það. Segir honum hvað þér þyki vænt um hann og að þú viljir hlusta og skilja hann. Ef til vill kemur eitthvað upp úr krafsinu og þið getið í sameiningu fundið leið til að létta lífið.
3) Þið eruð fyrirmyndir barnsins ykkar og börn læra það sem fyrir þeim er haft. Þú getur haft mikil áhrif á mataræði fjölskyldunnar allrar með því að kaupa inn hollan og góðan mat og passa að það sé takmarkað framboð af sætindum á boðstólum. 4)Kynlíf... þú talar um það sé eitt af því sem geri hann ánægðan (wonder why ) og í sömu setningu segistu ekki vilja elskast með honum vegna vaxtarlags hans / fitu.... held að þið þurfið að tala saman! Veit hann af þessum hugrenningum þínum? Er þetta raunverulega ástaæðan hjá minnkandi samlífi ykkar? Kynlíf er frábært, bæði sem hreyfing og andleg útrás, hormónalosun og gleðigjafi og mikilvægt fyrir ykkur að tala saman um þessa hluti.
Þetta er krefjandi og skemmtilegt verkefni enda hlutverk hjóna/para að hugsa vel um bæði sig sjálfan og makann, hafa jákvæð áhrif en vera um leið styðjandi og hvetjandi. Gangi þér vel, Gígja Þórðardóttir www.worldclass.is

|
|