Services


A+A-

Fyrir allar konurFemin


Basket

Karfan er tóm
Vörur samtals: 0 kr.
Heildarupphæð: 0 kr.

Categories




femin_logo_slogan


Kæri femin notandi,

Hér getur þú lesið upplýsingar um ýmsa þætti sem skipta máli þegar verslað er á netinu.  femin leggur mikinn metnað í að bjóða fjölbreytt vöruúrval og í dag eru 6000 vörunúmer seld í netverslun femin.is.  Myndgæði í netversluninni er af bestu gerð og í sumum tilfellum er upplifunin slík að það má líkja við sömu tilfinningu og að snerta vöruna eða finna ilminn.  Mikil áhersla er lögð á að kaupferlið sé sem þæginlegast fyrir notanda og að upplifun við að versla á netinu sé skemmtileg. 


Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða fyrir vörur með greiðslukorti eða með millifærslu.
Við tökum við öllum helstu greiðslukortum eins og Visa, Matercard og American Express.
Reikningsnúmer femin.is er 513-26-5660 kt. 480500-2960 og senda þarf kvittun á verslun@femin.is. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru. Sendingarkosnaðurinn kemur fram í lok kaupferlisins. Ef vara er uppseld og kemur ekki aftur í sölu á femin.is endurgreiðum við kaupanda að fullu.


Öryggi
Það er 100% öruggt að versla á femin.is 
Til að koma í veg fyrir misnotkun kortanúmera þegar verslað er á Netinu og varna því að utanaðkomandi geti komist yfir númerin hafa ýmis öflug öryggiskerfi verið hönnuð.  Um leið og viðskiptavinur ákveður að kaupa vöru fer hann inn í læst umhverfi þar sem allar upplýsingar um viðskiptin, þ.m.t. kortanúmerin eru dulkóðuð. Ógjörningur er fyrir utanaðkomandi aðila að nálgast þessar upplýsingar. Sá sem verslar í því umhverfi má vera 100% viss um að upplýsingarnar sem hann skráir eru algjörlega varðar fyrir utanaðkomandi aðilum.


Skilaréttur og ábyrgð
Ábyrgð á vörum er breytileg eftir birgjum. Ef þú hefur spurningu varðandi þetta þá endilega hafðu samband við starfsfólk femin.is eða með tölvupósti á verslun@femin.is. Almennur skilafrestur á vörum í verslun femin.is eru 30 dagar, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hægt er að skila vöru gegn framvísun reiknings og fær viðkomandi inneignarnótu í verslun femin.is.
Ef varan er gölluð borgar femin.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda.


Póstsendingar
Íslandspóstur sér um að koma öllum pökkum viðskiptavina femin á pósthús eða heim að dyrum.  Eftir að pöntun fer úr húsi frá femin þá tekur það Íslandspóst 1-3 virka daga.

Sendingarkostnaður er 795 krónur ef þú vilt fá pakkann á pósthús, en 1150 krónur ef þú vilt fá hann sendan  heim að dyrum.  Ef óskað er eftir að greiða með póstkröfu þá biðjum við þig vinsamlegast að senda okkur tölvupóst á verslun@femin.is (500 króna póstkröfugjald bætist við sendingarkostnað).


Annað

- Pantanir eru teknar til samdægurs eða daginn eftir að pöntun er lögð inn í netverslun femin.is.

- Ef vara er ekki til á lager höfum við samband við kaupanda.


Endilega hjálpaðu okkur að gera femin enn betri með því að vera virkur þáttakandi en það fellst í því að nota "líka" takkan sem tengist Facebook sem og með því að skrifa þínar umsagnir sem mögulegt er við hverja vöru og pistil.  Einnig er hægt að benda vinkonu/vini með því að nota "Senda vinkonu/vin" ábendingu á vöru eða pistil. 

Kærar þakkir fyrir að heimsækja femin.is

Íris Gunnarsdóttir
iris@femin.is

Sigurlaug Gissurardóttir
sillagiss@femin.is


 

femin ehf
Ármúli 36
108 Reykjavík
Sími: 544 4494

femin@femin.is 

            Sillagiss@femin.ia