Þann 20.10.2010 fagnaði femin 10 ára starfsafmæli sínu og nú fögnum við nýrri og glæsilegri femin.is
Femin er með trygga notendur en markhópur femin.is eru „konur“ á aldrinum 18 – 55 ára. Konur eru skemmtilegur markhópur og samkvæmt fjölmörgum könnunum sem gerðar hafa verið hafa konur áhrif og eða taka ákvörðun um kaup á allskyns vörum fyrir heimilið eða í um 80% tilvika. Femin á sér langa sögu eins og áður greinir og hefur stöðugt unnið að því að bæta og efla þjónustu við viðskiptavini sína og það er óhætt að segja að femin.is hafi dafnað vel frá því að hún fór í loftið fyrir rúmlega 10 árum síðan.
Við fögnum nú tímamótum og ný femin.is hefur litið dagsins ljós en vinna við innleiðingu á nýjum hugbúnaði er nú búin að standa yfir í rúmlega eitt ár. Einkenni femin.is er einfaldleiki og stílhreint yfirbragð.
femin er skipta í tvo flokka: Netverslun og greinaflokka
Öll framsetning efnis á vefnum er gert einfalt, aðgengilegt og gagnvirkni við notenda aukið, það sem við hvetjum notendur sérstaklega til að nota ummælin, þ.e að við hverja grein og vöru er notenda gert mögulegt að tjá sig og sjá hvað aðrir segja. Femin birtir tímalaust efni úr málaflokkum sem koma okkur öllum við eins og heilsu og hreysti, meðgöngu, börn, kynlíf og sambönd, útliti í víðum skilningi, tískutengt efni að ógleymdum uppskriftum. Við leggjum sérstaka áherslu á að birta myndir í góðri upplausn og í versluninni er hægt að stækka mynd svo mikið að í mörgum tilfellum er upplifunin slík að það má líkja við sömu tilfinningu og að snerta vöruna eða finna ilminn
Endilega hjálpaðu okkur að gera femin enn betri með því að vera virkur þáttakandi en það fellst í því að nota "líka" takkan sem tengist Facebook sem og skrifa þínar skoðanir tengdar vörum og pistlum í dálkinn "umsögn" sem er fyrir neðan pistil eða vöru.
Drifkraftur femin starfsfólks hefur aldrei verið meiri en einmitt núna, markmið femin á 11 starfsári sínu er að efla efnistök vefsins, auka gæði, sem og að auka vöruúrval i netverslun til handa okkar tryggu notendum s.l 10 ár. Við hugsum vel um „konurnar okkar“ og við höfum ávallt lagt nafn okkar við góða þjónustu við viðskiptavini okkar og ætlum við okkur að bæta enn frekar þjónustu okkar á þessu ári.
Það er ósk okkar að þið njótið nýju síðunnar og vonumst eftir ánægjulegu samstarfi við ykkur í framtíðinni og síðast en ekki síst þá hvetjum við ykkur til að hafa samband ef þú hefur einhverjar athugasemdir eða ábendingar um það sem betur má fara.
femin er í eigu Írisar Gunnarsdóttur sem stofnaði femin fyrir fyrir næstum 11 árum síðan og Sigurlaugar Gissurardóttur sem starfað hefur hjá femin í 8 ár.
Staðsetning:
femin ehf
Ármúla 36
108 Reykjavík
Sími: 544 4494
femin@femin.is
Kt: 4805002960
Bankareikningur: 0513 - 26 - 5660
Íris Gunnarsdóttir
iris@femin.is
Sigurlaug Gissurardóttir
sillagiss@femin.is
www.femin.is