femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Spjallflokkar
Alkóhólistar og aðstand...
Brúðkaup
Dýrahald
Börn og unglingar
Ferðalög
Gott í gogginn
Handavinna
Heilsurækt
Heimilið
Hugmyndir fyrir femin
Konur búsettar erlendis
Sambönd
Sex
Sjálfstæðar konur
Stjörnur og draumar
Þitt útlit
Kaup og Sala
Menning og listir
Fata- og skómarkaður
Sparnaðarráð



Könnun
Er sumarið búið?

nei

Senda mitt svar



Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf




Spjallþræðir > Sjálfstæðar konur > Innlegg
Spjallflokkar Til baka  
ATVINNUVIÐTAL !!!!!!!!!!!!!!!!! Svara » 
Höfundur matrix Dagsetning 25. október 2003, kl. 23:55
Sælar stelpur.
Verð að létta á hjarta mínu og pústa vel og lengi.......púúúst,
Þannig er mál með vexti að ég fór í atvinnuviðtal í vikunni sem leið um stöðu sem að ég hafði fullkomna menntun fyrir og mikla reynslu og, að mér fannst var alveg fullkominn kandídat í starfið. Atvinnuviðtalið gekk ágætlega fyrir utan smá stress og polla undir höndum en það sem að var horft í var það að ég átti barn og að maðurinn minn væri útivinnandi og ég ætti heimili og þar með skyldurnar sem því fylgja en hafði enga RÁÐSKONU.................staldrið nú aðeins við...........
það var mikið spurt og mikið rætt um að þetta væri stór staða og margar ferðir erlendis og hver ætti að sækja barnið á leikskólann og hver yrði heima með því þegar það yrði veikt og svona gæti ég haldið endalaust áfram.
Hafið þið heyrt aðra eins vitleysu.....er þetta orðið þannig í dag að maður er ekki ráðinn af eigin verðleikum heldur er horft í þaða ð ég er ekki búin að brúa brýr yfir ár sem hugsnlega gætu myndast....
,,HLUTUNUM ER REDDAÐ OG HEFUR ALLTAF VERIÐ REDDAÐ HINGAÐ TIL EF EITTHVAÐ HEFUR KOMIÐ UPPÁ" langaði mig að öskra á þetta mjög svo huggulega fólk sem tók viðtalið við mig, en ég beit í tunguna mína, vel og lengi eða alveg þangað til ég var komin útí bíl aftur en þá öskraði ég vel og lengi.
Ég á mann............halló..............og hann er ekki ófær um að redda hlutunum, ef svo ber undir.
Þetta finnst mér vera farið að ganga útí öfga og vel það, að það skuli vera orðin nánast skylda að vera með heimilshjálp, ráðskonu eða au-pair til að vera gjaldgengur í vinnu sem að krefst fjarveru frá heimilinu í lengri eða skemmri tíma.
Varð að pústa. Kv. MATRIX
 
 
RE: ATVINNUVIÐTAL !!!!!!!!!!!!!!!!! Svara » 
Höfundur Anna Dagsetning 26. október 2003, kl. 01:47
Ó MÆ GAD... þetta er nú farið að ganga allt of langt.

Ætli það sé nokkuð langt í það að það verði krafist að maður fari í ófrjósemisaðgerð til að fá vinnu svo maður verði örugglega ekki frá vegna barneigna!!!
 
 
RE: ATVINNUVIÐTAL !!!!!!!!!!!!!!!!! Svara » 
Höfundur chips Dagsetning 26. október 2003, kl. 16:38
Þetta er náttúrulega fáránlegt ... og á sama tíma og allt þetta feministatal gengur yfir. Stundum held ég að fólk fatti hreinlega ekki hvað það er að segja og hversu fáránlegt það hljómar. Við vitum allar að karlmaður er ekki spurður að því hver sjái um börnin þegar hann þarf að fara í viðskiptaferðir erlendis ... það þarf náttúrulega ekki að spyrja að því - nú hún sér um börnin ..... eins og hún hefur alltaf gert ! Þvílík spurning ..... !!

Svo er fólk hissa að konur séu ekki í fleiri stjórnunar- og áhrifastöðum .... þurfum við ekki að eiga við fleiri hindranir á leiðinni upp, eins og t.d. þessa .... hvernig eyrnamerkjum við svona hindrun ? Fyrirfram mótaðar hugmyndir um verkaskiptingu heimilisins ? Þröngsýni og afturhaldssemi ? Fordómar ? Ef það eru ekki konur sem geta gert 100 hluti í einu, þá veit ég ekki hver. Ég segi eins og þú .... auðvitað reddum við þessu eins og öllu öðru.

Hverju svaraðir þú ? Spurðu þau hvað maðurinn þinn starfaði við, hve langan vinnutíma og hve sveigjanlegan hann hefði ? Gerðu þau sér far um að kynna sér aðstæður ykkar og hve mikil ykkar samvinna er ?

Málið er að því meira sem maður hugsar um þetta, því fáránlegra verður þetta viðhorf .... þessi nálgun. Það eru margir karlmenn þarna úti sem styðja konuna sína af heilum hug í hennar starfi og starfsframa og gleðjast með henni og eru stoltir af henni en atvinnurekendur virðast bara ekki vera að fatta það ennþá - það er einfaldlega ekki reiknað með þeirra framlagi!

Áfram stelpur !! - Girl Power !!
 
 
RE: ATVINNUVIÐTAL !!!!!!!!!!!!!!!!! Svara » 
Höfundur Kúra Dagsetning 27. október 2003, kl. 18:37
Það er hreinlega óþolandi að fá svona spurningar yfir sig í atvinnuviðtali, aldrei hefur maðurinn minn verið spurður um svona!
Þetta kom líka fyrir mig einu sinni og ég varð SVO REIÐ!
En ég er kurteis að eðlisfari og sagði ekki meiningu mína.
Maður gæti haldið að sumir áttuðu sig ekki á því að börn eiga feður og hjá giftum konum tilheyra þeir fjölskyldunni.
GARRRRRR
 
 
RE: ATVINNUVIÐTAL !!!!!!!!!!!!!!!!! Svara » 
Höfundur DollyP Dagsetning 28. október 2003, kl. 15:27
Ekki spennandi að vinna hjá svona fyrirtæki
 
 

Spjallflokkar Til baka 





Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband