femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Spjallflokkar
Alkóhólistar og aðstand...
Brúðkaup
Dýrahald
Börn og unglingar
Ferðalög
Gott í gogginn
Handavinna
Heilsurækt
Heimilið
Hugmyndir fyrir femin
Konur búsettar erlendis
Sambönd
Sex
Sjálfstæðar konur
Stjörnur og draumar
Þitt útlit
Kaup og Sala
Menning og listir
Fata- og skómarkaður
Sparnaðarráð



Könnun
Er sumarið búið?

nei

Senda mitt svar



Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf




Spjallþræðir > Gott í gogginn > Innlegg
Spjallflokkar Til baka  
kjúlli Svara » 
Höfundur afródía Dagsetning 22. september 2002, kl. 12:13
vill ekki einhver gefa mér góða uppskrift af kjúkling (sem er ekki of erfið!!!)
 
 
RE: kjúlli Svara » 
Höfundur Þúfa Dagsetning 22. september 2002, kl. 14:28
Hér eru nokkrar einfaldar:

Salsa-kjúklingabringur

kjúklingabringur
nachosflögur (ókryddaðar)
salsasósa (medium)
mosarella ostur (eða bara rifinn venjul.)
taco krydd

Kjúklingabringur eru skornar í litla bita og steiktar á pönnu og kryddaðar með taco kryddi eftir smekk. Nachosflögur eru settar í botninn á eldföstu móti og kjúklingurinn settur yfir, salsa sósu hellt yfir (c.a hálfri krukku). Osti stráð yfir allt saman. Bakað í ofni í c.a 15 mín. eða þar til osturinn er vel bráðinn og bakaður og allt er orðið heitt. Borið fram með fersku salati og sýrðum rjóma.

Tikka Masala

2 kjúklingabringur
1 græn paprika
1 laukur
1 krukka Tikka Masala frá Madra Jaffrey

Sjóðið kjúklingabringurnar í svona 5-10 mín. Saxið papriku og lauk niður og léttsteikið á pönnu. Rífið bringurnar niður og bætið út á pönnuna. Því næst sósunni og látið krauma í 10-15 mín. undir loki við lágan hita. Borið fram með naan-brauði og hvítlaukshrísgrjónum.

Fajita kjúklingavefja

1/2 bolli majónes
1/2 bolli salsasósa
4 tortillakökur
280g. kjúklingakjöt, steikt
2 rauðar eða grænar paprikur
2 rauðlaukar

Steikið paprikurnar létt á pönnu, ásamt rauðlauk. Blandið saman majónesi og salsa í skál, sigtið mesta safann af salsanu áður. Leggið steikt grænmetið á tortillakökurnar, ásamt majónesi og salsa og kjúklingi. Rúllið upp og berið fram. Gott að hita tortillakökurnar áður.

Sælkerakjúklingur

2 dl.BBQ-sósa.
1 dl.soyasósa.
1 dl.aprikósumarmelaði.
100g. púðusykur.
50g. smjör
Steiktur kjúklingur

Einn steiktur kjúklingur rifinn niður í eldfast mót. Sósan hituð í potti og hellt yfir kjúklinginn og látið liggja í minnst 1 klst. Sett í ofn í 30 mín. við 200°C.

Terra Nova kjúklingur

1 kjúklingur
1 dós Campbell´s aspassúpa
1 peli rjómi
2 tsk. karrý
2 tsk. hvítlauksduft, (má sleppa)
1 dós grænn aspas
pastaslaufur
ostur
ritskex
salthnetur

Kjúklingurinn er steiktur, soðinn eða grillaður og síðan er hann beinhreinsaður og skorinn í bita. Pastað soðið og síðan sett í botninn á vel smurðu eldföstu formi. Kjúklingabitunum dreift ofan á pastað. Aspasbitarnir settir ofan á í formið. Súpunni, rjómanum og kryddinu blandað saman og einnig smá af aspassafanum. Blöndunni er síðan hellt yfir matinn í forminu. Muldu ritskexi og salthnetum stráð yfir ásamt rifnum osti. Bakað í ofni.




 
 

Spjallflokkar Til baka 





Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband