



|

|
| Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg |
|
|
|
|
| Höfundur mariannae |
Dagsetning 30. apríl 2010, kl. 10:26 |
Ég hef verið að hitta gaur núna í nokkra mánuði, svona casually að hittast. En við erum ekki á leiðinni í samband því hann sagði mér að hann fyndi ekki þann neista sem þyrfti til þess. Samt höldum við áfram að sofa saman og þegar við erum saman, hvort sem það er að horfa á videó eða að stunda kynlíf þá ber hann þess merki að hann sé hrifinn af mér. Við ákváðum að halda þessu skuldbindingalausu þó ég væri mikið til í að þetta yrði að sambandi, en ég vildi frekar halda áfram að hittast frekar en að sleppa því. Hann virðist sýna því áhuga líka.
Ég veit að þessi gaur er spes, hann hefur sjálfur sagt mér að hann sé einfari o.sfrv.
Mín pæling er ; Er hann hrifinn af mér? ... Einhver ástæða hlýtur að vera að hann haldi áfram að hitta mig, ef væri enginn áhugi þá myndi hann einfaldlega sleppa því ekki satt? Og þetta snýst ekki alltaf um kynlíf, við hittumst líka og höfum það notalegt saman þó við séum ekki að stunda kynlíf.
Þegar kemur að kynlífinu er það geðveikt.... Og alltaf þegar við sofnum þá er það í knúsi og innilegheitum, og flest skipti sofnum við nef í nef , ef þið fattið hvað ég á við.
Þannig hann gefur alveg frá sér merki þess að vera hrifinn þó hann hafi haldið fram að e-n neista vantaði....... Meiraðsegja eftir að við ákváðum þetta ,, að það væri engin pressa um væntingar að sambandi, þá hefur hann að mér finnst opnast bara ef eitthvað er...
Getiði gefið mér ráð?? Ég vil ekki ræða þetta aftur við hann og hætta á að fæla hann frá.... En ég vildi óska að ég gæti gert eitthvað sem fær hann til að vilja samband og vilja meira............
|
|
|
|
| Höfundur MisterRed |
Dagsetning 1. maí 2010, kl. 01:13 |
| Þú gætir prófað að fara að tala um að þú sért að deita aðra menn. Bara svona í framhjáhlaupi. Séð hvernig hann bregst við. |
|
|
|
| Höfundur mariannae |
Dagsetning 3. maí 2010, kl. 09:36 |
Já gæti svosem gert það.... samt þegar við ákváðum ''skilmála'' fyrir þessu öllu saman þá vildi ég hann segði mér ef hann myndi sofa hjá annarri.. en hann vildi ekki vita með mig - sagðist ekki vilja pæla í því ??? |
|
|
|
| Höfundur Morgunskíma |
Dagsetning 3. maí 2010, kl. 10:11 |
Hæ..
Hugsa að það sé ekki besta leiðin að segjast vera sofa hjá öðrum.
Mér heyrist á lýsingunum að hann vilji í alvöru ekki samband en auðvitað veit maður aldrei.
Ef þú vilt ekki eyða meiri tíma í svona casualt dæmi sem er ekki að leiða til neins gætir þú prófað að segja honum það og bara hætt að hitta hann.
Ef hann missir þig þá kannski sér hann að sér, að hann er hrifinn og vill halda þessu áfram.
Kannski ekki.
Þú þarft að spyrja sjálfan þig hvað þú vilt og hvert þitt líf stefnir. Ertu tilbúin að eyða tíma þínum með svona strák? Viltu eyða ást á hann og fá lítið til baka? Það er eins og að borga fyrir að vera á fimm stjörnu hóteli en fá koju á skítugu hosteli fyrir peninginn.,,,
Einn daginn áttu eftir að hitta strák sem sér ekki sólina fyrir þér, kann að meta þig og elskar þig. Þangað til skaltu rækta sjálfa þig og gera eitthvað skemmtilegt með vinum þínum.. Maður þarf nefnilega ekki gaur til að láta sér líða vel.
He is just not that in to you.
|
|
|
|
| Höfundur mariannae |
Dagsetning 3. maí 2010, kl. 10:52 |
Já ég fatta hvað þú meinar.. ég hef líka hugsað þetta; vil ég ekki frekar gaur sem sér ekki sólina fyrir mér og er bara head over heels ástfanginn af mér. Málið með þennan er bara að hann er með svo óóótrúlega mixed signals að það er voða erfitt að átta sig á honum... Ég vissi í sjálfu sér í upphafi að hann er ekki á leiðinni í samband og hefur varla tíma til að halda slíku uppi , að nálgast fertugt þessi maður og samt single og engin börn, það hlýtur að vera e-r ástæða.. hann hlýtur að vera með commitment fóbíu? |
|
|
|
| Höfundur Firefox |
Dagsetning 3. maí 2010, kl. 21:47 |
Sæl. Eg er gaur og er í svipuðu sambandi og þú og við höfum alveg talað um samband og allt það.
Þú segir að hann sé einfari.. Þar tel ég þetta liggja því sjálfur hef upp að vissu marki verið einfari og var þar af leiðandi ekki til í samband alveg strax.
Sko um leið og þú ferð í samband þá hættiru að vera þessi einfari og þú hættir ekki að vera einfari á einu deigi..
Hann er alveg pottó hrifin af þer.. Hann er bara smeykur við að missa þennan tíma sem hann hefur fyrir sig. Eg veit vel að þo maður sé með stelpu þá hefur maður alveg tíma fyrir sig..... Ég er ekki að meina það.
Hann þarf bara gera það sama og eg er að gera.. Að kúpla sig frá því að vera einfari en það tekur smá tíma. En eg er það ,,heppinn" að stelpann sem er með mér er ekki að flýta sér neitt í samband og vill bara taka góðan tíma í þetta þannig eg hef góða tíma til að "þjálfa mig"
Kannski er ég bara bull og að þetta sé ekkert vandamálið hjá honum.. En þetta er hugmynd |
|
|
|
| Höfundur mariannae |
Dagsetning 4. maí 2010, kl. 12:06 |
Já ég hugsaði einmitt að einhver hlyti hrifningin að vera því annars væri hann fyrir löngu hættur að hitta mig og við erum búin að spila þetta í raun í 4-5 mánuði.. Ég var líka búin að segja við hann að hann yrði að gefa þessu sjéns til að sjá hvort það gæti farið eitthvað, þegar hann talaði um að þennan neista vantaði... Og ég upplifi það ekki af hans hálfu né minni að það vanti neista. Hann hefur líka sagt við mig að ég sé ekki að hitta á hann á réttum tíma í lífinu. Samt höldum við þessu áfram. Ég hef verið rooosalega þolinmóð nefnilega við hann.
Kannski er ég too available fyrir hann og það er fráhrindandi?? Gæti það verið?
Veit í raun ekkert hvernig ég á að haga mér í þessu öllu saman.......???
|
|
|
|
| Höfundur megast |
Dagsetning 5. maí 2010, kl. 23:09 |
Ef þú ert að leita þér að maka þá átti ekki að gera neinar málamiðlanir. Hann talaði um að það vanti neista - sem gefur til kynna að hann sé ekki að finna það sama og þú.
Honum finnst hann örugglega hafa verið skýr með hvernig hann vill hafa þetta samband og ég tel ekki líklegt að hann uppgvöti allt í einu að þú sért sú eina rétta fyrir hann. Fyrir honum þá er þetta samkomulag þægilegt og öruggt og hann er búinn að leggja línuna.
Vertu skýr með hvað þú vilt og settu úrslitakosti - þú vilt ekki eyða miklum tíma í að þjónusta þennan strák ef honum er ekki alvara með þig. Því meiri tími sem líður því erfiðara verður að leggja línuna í sambandinu og endalokin geta orðið sár. |
|
|

|