



|

|
| Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg |
|
|
|
|
| Höfundur Smúppi |
Dagsetning 3. maí 2010, kl. 18:50 |
Hæhæ
Þannig er mál með vexti að ég hætti með mínum fyrverandi (barnsfeðri) í enda júlí 2009 eftir 2 ½ árs sambands, ég var bara ekki að finna að ég væri hrifin af honum en samt elskaði ég hann, ég vildi flytja útá land vera nær fljölskyldu minni en hann neitaði því vildi ekki einu sinni prófa fyrir mig í smá tíma. Svo í september kynnist ég strák sem býr á sama stað og ég og verð alveg yfir mig hrifinn og hann er algjör draumur er rosalega góður við mig og við bara gátum ekki verið án hvors annars. Svo allt í einu breytist hann alveg eins og hann hafi engan áhuga þá mér, fer að ljúga (sem ég HATA) og þegar það gerist fer ég að finna líka aftur roslega sterkar tilfinningar til míns fyrrverandi, og ég segi það við hann þannig hann vill reyna aftur rosalega góður, en svo bara gegnur það ekki upp ég á heima útá landi hann í rvk ég með góða vinnu þar og hann í skóla í rvk. Hann spyr hvort við getum orðið bólfélagar bara svona þegar ég kæmi í bæjinn og svona. Og ég samþyki það, því kynlífið var alltaf mjög gott hjá okkur og varð eiginnlega bara betra eftir við hættum saman. Svo vill hinn líka byrja að sofa saman og viti menn já já ég samþyki það bara líka þannig að ég er að sofa hjá þeim báðum.. ég veit ekki rosa góð stelpa en ég er bara með kannski aðeins meiri kynorku en sumar konur eru með hehe.. ! Núna er hann alltaf svo góður við mig, hann gerir hvað sem er fyrir mig, kallar mig bara prinsessu, en ég vill ekki láta hann gera allt fyrir mig. Hann á nóg af peningum og það er klárlega ekki nóg fyrir mig ég vil ást. Svo kemur 3 strákurinn sem vinkona mín kynnir okkur, hann er rosa góður og skemmtilegur, sætur og fynndin, og við erum að deita og ég bara orðin pínu hrifinn og hann orðin rosa hrifinn, svo er eins og það sé slökkt á ljósaperu, ég bara finn ekki neitt, ég er ekkert hrifin af honum eða neitt, hann er alltaf að spurja hvort hann meigi koma til mín því hann býr í rvk og ég útá landi en alltaf finn ég einhverja afsökun um að hann geti ekki komið, ég bara hef það ekki í mér að segja honum að ég sé bara ekkert hrifin af honum og það er rosa ljótt af mér að draga hann af asnaeyrunum :/ Er ég bara enþá hrifinn af barnfeðri mínum eða ? Samt einhvernveginn langar mig ekki að vera í sambandi og ég bara KANN EKKI að vera ein!! Þess vegna kannski stekk ég bara til næsta sem sýnir áhuga og finnst einhvernveginn að ég eigi líka að vera með honum þvi hann er skotinn í mér.. Vá sorry hvað þetta var eitthvað langt ég bara veit ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig, get ekki haldið mér með einum, nenni ekki að vera í samb, vil samt ekki vera ein.. PLÍS einhver sem getur hjálpað mér heheh  Takk fyrir að nenna að lesa þetta Kv. Smúppi
|
|
|
|
| Höfundur shelba |
Dagsetning 4. maí 2010, kl. 22:36 |
Þú ert ekki nógu hrifin af neinum þeirra. Ef svo væri þá færi það ekkert á milli mála og þú hefðir þá ekki löngun í að hitta neinn annan. Myndi loka á þá alla og reyna að finna sjálfa mig. Það er rosalega slítandi að vera í svona samböndum eins og þú ert í núna.
Fyrst þú átt barn myndi ég núna reyna að finna mér uppbyggilegra samband. |
|
|
|
| Höfundur megast |
Dagsetning 5. maí 2010, kl. 23:15 |
Það að þú sért að sofa hjá tveimur í einu tengist kynorku þinni ekki neitt heldur lýsir frekar þeim stað sem þú ert á andlega. Þú þarft að byggja þig upp og gera sjálfsmynd þína sterkari.
Taktu þinn tíma og vertu ein í nokkra mánuði og ekki hugsa um stráka. Þú þarft að vita hvað þú vilt og hver þín mörk eru áður en þú dembir þér í annað samband. |
|
|
|
| Höfundur behaviorist |
Dagsetning 9. maí 2010, kl. 11:45 |
Einmitt af tvi tu kannt/villt ekki vera ein, VERDURU ad vera ein! Tu att seint eftir ad finna hamingjuna i sambandi ef tu getur ekki fundid hamingjuna med sjalfri ter. Tad er nefnilega einn stærsti utgangspunkturinn i hamingjusømu lifi.
tu ert ad brjota sjalfa tig nidur med tessu rugli! Allt held eg ad hafi byrjad a tvi ad tu forst allt of hratt i samband med nyjum eftir fyrrverandi, og svo koll af kolli - eg efa ad tu yfirhøfud hafir fengid tima til ad atta tig a og ihuga ad tu ert einstæd modir....
Bremsadu min kæra - ødruvisi reddast tetta ekki. |
|
|

|