femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Spjallflokkar
Brúðkaup
Börn og unglingar
Gott í gogginn
Heilsurækt
Hugmyndir fyrir femin
Sambönd
Sex
Sjálfstæðar konur
Þitt útlit
Meðganga og fæðing
Erfiðleikar við getnað



Könnun
Stundar þú líkamsrækt? Hvar þá?
World Class
Hress
Baðhúsinu
Sporthúsinu
Hreyfingu
Annað

Senda mitt svar



Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf




Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg
Spjallflokkar Til baka  
Áhorf Svara » 
Höfundur Nightcrawler Dagsetning 16. maí 2010, kl. 02:23
Hæhæ.

Nú hef ég aldrei póstað neinum sambandsvandræðum áður og er ekki einu sinni viss hvort vandræði má kalla. Ég veit bara að mér líður ekki vel með þetta og þarf að tala um það. Það væri næs ef ég gæti fengið svör frá einhverjum sem kannast við þessa hluti og jafnvel bara álit allra sem lesa. Allavega...

Nú bý ég með manni og við erum búin að vera saman í tæp tvö ár. Við eigum 7 mánaða barn saman. Við eigum góða samleið þannig séð og oftast eru hlutirnir í lagi. En það er nú bara þannig að sambönd eiga sína góðu daga og sína slæmu. En það eru ákveðnir hlutir sem angra mig.
Nú er það almennt þannig að körlum finnst gaman að horfa á gellur og ég geri mér alveg grein fyrir því en ég hef ítrekað lent í því að vera með honum í búðum eða eitthvað svona hversdagslegt úti í bæ og séð hann bókstaflega snúa hausnum 180% á eftir einhverjum stelpum sem gætu verið dætur hans (hann er að nálgast fertugt). Mér líkar þetta mjög illa og á erfitt með að njóta þess að fara eitthvað því ég er svo meðvituð um þessa hluti að ég fer ósjálfrátt að hugsa um það þegar ég sé einhverjar ungar stelpur í gellubúningnum.
Síðast þegar hann sneri hausnum svona var mér ofboðið og ég sagði bara svona hversdagslega "Þú veist að ég sé alveg þegar þú gerir þetta." Hann reyndi náttúrulega að pinna þessu á eitthvað annað sem hann gerði en þegar ég sagði honum blátt áfram hvað hann var að gera þá reyndi hann að bera fyrir það og roðnaði svo upp fyrir haus. Hann veit ég trúði honum ekki og vissi upp á sig sökina. Ég varð miklu sárari af því hann reyndi að ljúga að mér sem gerir mér mun erfiðara um vik að treysta honum.

En... ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég hef nefnt þetta við hann. Og hann er búinn að lofa að segja mér ekki ósatt og horfa ekki svona þegar ég er með honum.

Það hjálpar reyndar ekki að ég get ekki munað eftir neinu skipti þar sem hann segir við mig að honum finnist ég falleg. Jú, falleg augu kannski.
Svo er ég kannski extra viðkvæm eftir að hafa átt. Þetta er náttúrulega fyrsta barn svo ég er grænjaxl í öllum þessum viðkvæmheitum. En svo er hann líka þannig að þrátt fyrir að hann sjái að mér líði ekki nógu vel (enda fel ég ekki tilfinningar mínar) þá spyr hann aldrei hvort eitthvað sé að eða hvort ég vilji spjalla heldur lætur eins og ekkert sé og vonar að allt verði gott aftur.

Ég hef bara aldrei lent í þessu áður og ég ætlast til meira af maka mínum. Hann ber oft fyrir sig slæmt uppeldi og því að hann sé bældur (sem er reyndar alveg rétt) en á ég að þurfa að líða fyrir það? Á ég að leika sálfræðinginn hans og hundsa tilfinningar mínar á meðan? Ég hef reynt að vera tillitssöm og hjálpa en það reynir alveg geigvænlega á þolinmæði mína. Það gæti tekið eilífð að fixa hann ef það er þá hægt og á ég bara tileinka lífi mínu því og líða svona á meðan? Það hljómar ekki vel.

Hvað finnst ykkur um þetta?
 
 
RE: Áhorf Svara » 
Höfundur Sonn Dagsetning 17. maí 2010, kl. 18:30
Hann er ekki að sína þér virðinguna sem þú átt sannarlega skilið, ég skynja hann vera afskaplega óþroskaðan, það verður þegar fólk vinnur ekki úr sínum vandamálum, folk getur orðið misþroska, eða á þeim sviðum sem það er bælt, það stöðnar á þeim tímapunkti þar sem það bældist á vissum aldri og því er ekki litið í áttina að því eftir það, viljin til að vinna úr sér er engin, enda er fólk dofið, það gerist þegar maður er hreinlega algerlega dofin, þessi tilfinningalegu svið verða eins og óhreinu börnin hennar Evu, geymd óúrunnin úr æsku undir mörgum lögum, ósinnt kanski, en skaðin að gera það þrengir sér alltaf einhvernvegin upp á yfirborðið og eyðileggur.
-
Af hverju átt þú aðeins að gefa, þegar hann getur ekki fundið það upp hjá sjálfum sér að gera það gagnvart þér, getur ekki einu sinni gert það sem þú biður hann um, en trúðu mér, það sem þú biður hann um er aðeins lágmarks kurteisi (og virðing) í samböndum fólks.
-
Kona sem er nýbúin að eiga barn er alltaf falleg, kona sem er nýbúin að eiga barnið þitt er guðdómleg, hvernig sem hún lítur út ;)
-
Mín skoðun er samt sem áður sú að það er fallvalt að treysta á pepp eða sjálfstraust frá öðrum, ég hef gert það og það hefur líka fellt mig, svo ég lærði að virkja þetta sjálfstraust í sjálfri mér, óháð öðrum.
Til þess þarf maður líka að gefa af sér til sjálfs manns, skella sér í klippingu, ljós og litun, finna e-ð fallegt til að klæðast sem manni líður vel í.
(ég er ný búin að þessum pakka núna, en ég geri þetta alltaf reglulega, það gerir kraftaverk fyrir mann sjálfan)
-
"ekki vanmeta þig, heimurinn gæti tekið það upp eftir þér"
-
Ég sé að þið talið ekki saman, en það sem þú lísir hér er e-ð sem þarf að leysast, ef þú sérð þig ekki ná til hans, þá er það hugmynd að þú sínir honum þennan þráð, þú ert alls ekki að skíta hann út, heldur aðeins kona sem ert greinilega í vanlíðan á stað í lífinu þar sem þú ættir að vera hamingjusöm, það að þú skrifir hérna veitir honum kanski sýn, að þetta liggi djúpt hjá þér, og að vandamálið hefur ekki verið að leysast, annars værir þú ekki að því.
-
Gangi þér vel, lífið er alltof stutt til þess að alast upp í því að maður sé ekki nægilega góður.

Kv. Sönn.
 
 
RE: Áhorf Svara » 
Höfundur Teralee Dagsetning 19. maí 2010, kl. 07:30
Æ þetta gón hjá köllum á annað kvenfólk minnir mig alltaf á hunda. Ekki nefna þetta meira við hann og byggðu upp sjálftraustið hjá þér. Svona stutuu eftir barnburð er maður heavy viðkæmur, vertu meðvituð um það.. Snúðu vörn upp í sókn og farðu að góna á aðra stráka - sérstaklega þessa ungu og sætu og gerðu það á áberandi hátt. sjáðu svo hvernig öðurm líður með það

ps. les það úr skriftinni og á milli línanna hjá þér að þú ert alltof góð fyrir hann.
 
 
RE: Áhorf Svara » 
Höfundur hvaðalæti Dagsetning 22. maí 2010, kl. 14:48
Allt of góð fyrir hann er kannski ekki hægt að segja þar sem bara þín hlið á málinu er hér til umræðu.
Ég var gift svona manni sem mældi allar konur út og afklæddi þær hreinlega með augunum sem olli því að vinkonur mínar vildu ekki heimsækja mig eða umgangast mig með hann nálægan.
Ég sjálf hugsaði á þessum tíma á ég að láta bjóða mér þetta og svo þetta klassíska æ við erum nú gift og tvö börn... hvað ef ég er að gera rangt með því að yfirgefa hann og mun alltaf sjá eftir því???? En svo margt annað verra fór að eiga sér stað í þessu hjónabandi svo að ég hreinlega bara flúði.
Nú í dag er ég með manni sem ég veit að er skapaður fyrir mig og ég fyrir hann. Við erum búin að vera saman núna í næstum 10 ár og ástin alltaf eins og við séum ný byrjuð saman. Hann hefur sína galla eins og ég og allir aðrir en samt er hann einstakur. Vinkonur mínar eru gáttaðar á því að svona fyrirbæri sé til eins og hann er. Segjast dauðöfunda mig. Hann er alltaf jákvæður og bjartsýnn þó ég hafi ekki hér áður fyrr verið auðveld í umgengni. Ég er núna óvirkur alkóhólisti og er með þunglyndi og veit að án hans væri ég löngu dauð!!!!
Ég horfi ekki annað því að mig langar ekki í skyndibita út í bæ á meðan steikin bíður eftir mér heima. Ég sé hann aldrei horfa girndaraugum á annað kvennfólk því hann sér ekki sólina fyrir mér og lætur mig finnast ég vera eina konan í veröldinni.

Ef þinn kæri maður væri yfir sig ástfanginn af þér myndi hann ekki hafa þörf fyrir að horfa á aðrar konur.
Lokaður er bara afsökun sem karlmenn óspart nota osfrv. Mínir sambýlismenn hafa ekki verið lokaðir við mig en fjölskyldum þeirra finnst ´þeir vera það almennt. Ef ég er opinn opnast þeir. Ég er líka þannig manneskja að ég verð að geta talað um hluti og vill vita hvar ég hef viðkomandi og krefst þess að fá að vita um æsku, uppeldi, fyrri sambönd og sfrv. Þá er ég að meina tilfinningalegu hliðina á öllum þessum málum.

Einmitt svona lokaðir gæjar eiga nefnilega í erfiðleikum með tilfinningalegu hliðina og ná ekki að komast framhjá greddunni. Karlmenn bara hugsa einfaldlega allt öðruvísi en við og þegar þeir eru að glápa á konur ´sem þeim líst vel á er almenna hugsunin hjá þeim ,, hvernig ætli það sé að ríða þessarri" Svona er þetta bara og ekkert við því að gera.
Ef þú ferð að gera það sama og horfa á eftir öðrum gæjum þá er þetta bara fáránlegur eltingaleikur sem gefur ekkert gott af sér.
Vertu þú sjálf og krefstu af honum upplýsingar um hann sjálfan og heiðarleika. Ef hann geri það ekki þá er ágætt að segja honum að hann sé ekki að fullnægja þér andlega svo að þú finnir þig knúna til að leita á önnur mið.

Sorry hvað þetta er langt hjá mér, en ákvörðunin er þín hvað þér finnst rétt að gera.
 
 
RE: Áhorf Svara » 
Höfundur behaviorist Dagsetning 24. maí 2010, kl. 10:12
Sæl.
Nu ætla eg BARA ad svara ter utfra einu atridi sem tu nefnir her inni - eg personulega held ad allt hitt stafi af tessu atridi og finnst ad tu ættir ad vinna i tvi fyrst. Hins vegar ætla eg ekki ad bera a moti neinu sem hefur verid skrifad a undan - mer finnst hreinlega of snemmt ad ræda tannig hluti.

eg atti sjalf mega bagt eftir fædingu frumburdarins. Og mer fannst hann alls ekki hjalpa... Vid erum ekki ad tala um sama karlamalid en fyrir tad fyrsta er tad hrikalega algengt ad pørum gangi illa 1.arid eftir fædingu. Tad er svo margt nytt.

Tu tarft ad byggja upp titt sjalfstraust ein og ser, en tid turfid ad tala saman! Ein leid til ad gera tad er ad a kvøldin tegar krilid er sofnad hafid tid fastsettan klukkutima bara tvø. Engin tølva og ekkert sjonvarp. Eldid ykkur eitthvad gott eda buid til kvøldsnarl og sitjid saman vid eldhusbordid. I fyrstu skiptin verda tessar samrædur liklegast yfirbordslegar og snuast bara um daginn (af tvi her er mikilvægt ad tessi timi fari ekki i tud og rifrildi, heldur ad allir seu upplagdir fyrir spjall). Svo koma dagar tar sem hægt er ad ræda alvarlegri hluti. og adur enn lidur verdur tetta mikilvægur partur af deginum ykkar.

Vid høfum enn tann dag i dag okkar spjall i hadeginu. Ef of mørg hadegi lida ann tessa spjalls okkar ta fer fljott ad halla undan fæti... vid verdum oanægdari og okkur finnst vid ekki vinna eins vel saman.

Mikilvægt er, ef tu velur ad fylgja tessu - ad tessi timi passi badum alltaf og se ofravikjanlegur! Ekki leyfilegt ad panta deit med vinum a tessum tima eda hvad sem er annad. Vid erum ad tala um klukkutima - og tad er vel hægt ad skipuleggja daginn tannig ad ekkert tvælist fyrir tennan klukkutima.

Gangi ykkur vel! Tetta er drulluerfitt - tad er misjafnt hvernig konur koma ur fædingu en eg vard virkilega nidri fyrir og tetta hjalpadi mer upp aftur
 
 

Spjallflokkar Til baka 





Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband