



|

|
| Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg |
|
|
|
|
| Höfundur kronan |
Dagsetning 31. maí 2010, kl. 00:28 |
Okei, þetta er frekar vandræðalegt vesen en okei. Eg er kominn með svona tvisynar ahyggjur og sambandi minu við kærustuna. Við vorum alltaf þetta flotta par sem aldre reifst og eitthvað. Við erum buin að vera saman i ar nuna og allt i einu erum vid nanast farin að þræta utaf engu. Svo alltaf svona þegar eg kannski sendi henni sms og godanott og svona og ta fæ eg alltaf bara tvilikt leidinlegt "godanott" og engan broskall og "eg elska tig lika." Og lika þannig að eg þarf alltaf að segja eg elska þig a undan og hun aldrei. Eg er farinn að halda að hun se buin að missa ahugan og allt það. Þvi fyrir u.þ.b fyrir 3 vikum eða eitthvað vorum við nanast hætt saman og við akvaðum að halda afram og reyna vinna ur þessu og þetta er farið að fara svolitið mikið i taugarnar a mer og er farið að hafa mikil ahrif a mig bara i daglegu lifi.
Svör væru mjög svo vel þegin sem fyrst og engin skitakomment. |
|
|
|
| Höfundur lind |
Dagsetning 31. maí 2010, kl. 16:59 |
Sæll og blessaður!
Ég myndi leggja áherslu á það að þið mynduð tala betur saman. Hvorki hún né þú lesa hugsanir. Það er svo oft sem maður heldur að einhver eigi að vita hvernig manni líður.....en það er ekkert alltaf þannig.
Talaðu skýrt og hnitmiðað og segðu henni það sem þér býr í brjósti. Kannski líður henni alveg eins yfir einhverju sem þú hefur sagt eða gert og þú áttar þig ekkert á. Vertu bara rólegur og yfirvegaður, ekki vera með nein læti. Það borgar sig engan veginn.
Mundu bara að í samböndum eru skin og skúrir...og um að gera að hlúa vel að sambandinu ef grunnurinn er traustur. Og tala strax saman ef eitthvað er að trufla þig, ekki bíða með það þangað til allt sýður upp úr.
Gangi þér vel  |
|
|

|