femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Spjallflokkar
Brúðkaup
Börn og unglingar
Gott í gogginn
Heilsurækt
Hugmyndir fyrir femin
Sambönd
Sex
Sjálfstæðar konur
Þitt útlit
Meðganga og fæðing
Erfiðleikar við getnað



Könnun
Stundar þú líkamsrækt? Hvar þá?
World Class
Hress
Baðhúsinu
Sporthúsinu
Hreyfingu
Annað

Senda mitt svar



Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf




Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg
Spjallflokkar Til baka  
Ráðalaus makinn vill skilnað en gerir ekkert í því samt Svara » 
Höfundur einmanna strakur Dagsetning 26. júní 2010, kl. 11:51
Veit ekki hvernig ég á að byrja eða hvað ég á að segja. Er algerlega lost en verð sennilega að sætta mig við það sem orðið er. Það er bara frekar erfitt þar sem það virðist ekki vera uppá borðinu að ég fái að hafa börnin mín.

Konan vill skilja en gerir samt ekkert í því veit ekki hvort henni líkar svona vel að hafa mig samt sem vinnukonu til að þrífa og passa þegar hún er að djamma. Eða bara að gera eitthvað allt annað en að hugsa um börnin.

Hvað á ég að gera ég reyni að draga þetta á langinn því ég elska börnin mín og vill hafa þau sem mest nálægt mér. Í staðinn þá er ég líka alltaf til í að leyfa henni að fara og gera hvað sem er því það er miklu léttara að vera með þau þegar hún er ekki nálægt þau sakna nefnilega mömmu sinnar og þegar hún er á svæðinu sinnir hún þeim varla nokkurn skapaðan hlut.

Shit þegar ég skrifa þetta verð ég bara niðurdreginn getur einhver peppað mig upp og sagt mér miðað við þessa stuttu lýsingu hvað viðkomandi finnst ég eigi að gera þarf að fá staðfestingu á því sem ég er að hugsa.

kveðja einn einmanna sem langar bara að halda áfram með lífið en ekki sitja í eimd og volæði sem skítatuska til slits og brúks
 
 
RE: Ráðalaus makinn vill skilnað en gerir ekkert í því samt Svara » 
Höfundur Hæ Sæta Dagsetning 26. júní 2010, kl. 23:04
Sæll!

Það er ekki gott að heyra þetta. Það er heldur aldrei auðvelt að gefa ráð, en ég held samt að til lengri tíma litið sé auðveldara að fara úr sambandi þar sem báðir aðilar eru óhamingjusamir - líka barnanna vegna. Þá er líklegra að þú fáir börnin þín heim til þín og þið njótið ykkar saman.

Það er ekki gott fyrir þig og börnin þín að þú sért "skítatuska" á heimilinu, og sitjir í eymd og volæði. Það eru allar líkur á því að þín bíði eitthvað betra.

Gangi þér vel

Sæta
 
 
RE: Ráðalaus makinn vill skilnað en gerir ekkert í því samt Svara » 
Höfundur einmanna strakur Dagsetning 30. júní 2010, kl. 09:11
Já kannski er það rétt ég get kannski sleppt því að vera skítatuskan og farið að sinna sjálfum mér og kannski börnunum líka betur aldrei að vita ætla allavegana að vinna útfrá því
 
 
RE: Ráðalaus makinn vill skilnað en gerir ekkert í því samt Svara » 
Höfundur gmatt Dagsetning 22. júlí 2010, kl. 20:47
Ja hérna. Ertu enn að láta berja þig eins og harðfisk eftir öll þessi ár. Hef sagt það áður og segi það enn. Skildu við herfuna og farðu til sálfræðings til að byggja þig upp. Veit alveg hvað þú ert hræddur við en hún á aldrei eftir að nenna að hugsa um krakkana allan þann tíma sem hún þykist vilja eða geta haft þau. Þú endar hvort eða er á því að taka þau miklu meira, hver sem díllinn verður svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Þau verða helling hjá þér. Þetta er ekkert flókið, bara erfitt, en í þínu tilfelli borðliggjandi. Hvað oft á að þurfa að þurfa berja þetta í þig. Byrjaður á því að panta tíma hjá lögfræðingi.

Hlustaðu nú einu sinni drengur og taktu sjálfur stjórn á aðstæðum. Það getur enginn gert þetta fyrir þig. Vertu maður en ekki motta og hrákdallur.
Kv. GM.
 
 
RE: Ráðalaus makinn vill skilnað en gerir ekkert í því samt Svara » 
Höfundur einmanna strakur1 Dagsetning 23. júlí 2010, kl. 23:08
Já það er rétt og þarna talaði kona sem veit hvað hún er að segja. Þekki samt bara einn lögfræðing sem ég treysti og veit ekki hvort hún tekur að sér svona mál Best að nota tækifærið og gera eitthvað í málinu sjá það frá utanaðkomandi sjónarhorni. Og horfa á það með réttum augum og gleðjast í stað þess að syrgja það sem ekki er. Eða er það ekki rétta leiðin. Brosa og vera jákvæður hefur alltaf reynst mér vel í lífinu. Enda hefur það verið mitt lífsmottó. EN einhvern veginn týndist ég í einhverju sem ég veit ekki einu sinni hvað er.

Ætla að segja takk GM ég skil hvað þú ert að segia og ég veit þú veist þínu viti.

Horfi á málið allt öðrum augum veit það gerir þetta engin fyrir mig það er ljóst. Og ég ætla að vera sá maður sem ég er en ekki mottan sem ég er búinn að vera of lengi.

Með bestu þakkarkveðju.

PS getur einhver bent mér á góðan lögfræðing ef þessi sem ég þekki tekur ekki að sér svona mál
 
 

Spjallflokkar Til baka 





Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband