



|

|
| Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg |
|
|
|
|
| Höfundur sos |
Dagsetning 2. júlí 2010, kl. 02:59 |
Er bara að velta fyrir mér afhverju sumir karlmenn eru svona rosalega uppteknir af aukakílóum okkar kvenna. Meina lenti í því að vera að vinna með strákum sem töluðu lítið sem ekkert við mig höfðu engan sérstakan áhuga... svo missi ég sirka 10 kilo var svona soldið þybbin ekki offitu sjúklingur samt og þeir fara allt í einu að brosa og spjalla og annar þeirra varð mjög hrifinn af mér allt í einu bara af þvi að ég grenntist... En hann er giftur þannig að . Mer finnst þetta samt svo mikil lítilsvirðing við mig sem personu að af því að maður á í basli við aukakiloin þá á maður engan séns. Finn þetta líka koma fra konum horft á mann og bara endalausir óbeinir fordómar. Ég hef samt oft orðið hrifin af mönnum sem hafa verið þybbnir. sKIL ÞETTA EKKI...
|
|
|
|
| Höfundur einmanna strakur |
Dagsetning 3. júlí 2010, kl. 18:35 |
| Iss það er nú ekkert nýtt en veistu ef það er einhver sem er að leita að þér sem persónu ekki sem líkama þá sér hann ekki aukakílóin það er nú málið. Mín fyrrverandi fitnaði og grenntist og veistu ég var alltaf jafn skotinn í henni alveg sama hvernig kílóafjöldinn var ég hjálpaði henni samt frekar að grennast þegar hún fitnaði með því að styðja hana í að hreyfa sig og allt það ekki með þvi að kommenta um að hún væri of feit það virkar ekki það er bara niðurbrot og merki um að þú sjáir bara líkamann sem þú ert að horfa á ekki það sem er fyrir innan. |
|
|
|
| Höfundur Finchley |
Dagsetning 6. júlí 2010, kl. 11:24 |
Karlmenn eru vonlausir stundum..... En þegar þeir eru í bænum, þá leita þeir eftir Paris Hilton en svo þegar þeir eru á netinu eru þeir kannski ekki að leita eftir henni þar, frekar bara venjuleg stelpu. En sumir karlmenn vilja granna konur og aðrir þétta konu eða feitari. Við erum bara ekki öll eins. En þú hefur ekkert við giftan mann að gera. En bíddu bara, þá verður annar maður sem á eftir að sjá þig hvort sem þú hefur aukakíló eða ekki. Ég held líka að persónuleikinn skipti miklu máli.
En gangi þér vel!!!!
Og finndu þér mann sem er á lausu. Við höfum ekkert við þessa giftu að gera ;) |
|
|
|
| Höfundur Kona á besta aldri ;o) |
Dagsetning 13. júlí 2010, kl. 19:53 |
HaHaHaHa  Þeir eru einfaldir .....ekkert annað ....Og þegar þeir eru endlaust að leita að Paris Hilton, þá verða þeir á endaanum svo veruleikafyrrtir að þeir vita ekkert í sinn haus haha ;o)
Strákar hættiði að gera þessar ofboðslegu kröfur og hættið að spenna bogann svo ofboðslega hátt að hann hittir ekki rass  |
|
|

|