femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Spjallflokkar
Brúðkaup
Börn og unglingar
Gott í gogginn
Heilsurækt
Hugmyndir fyrir femin
Sambönd
Sex
Sjálfstæðar konur
Þitt útlit
Meðganga og fæðing
Erfiðleikar við getnað



Könnun
Stundar þú líkamsrækt? Hvar þá?
World Class
Hress
Baðhúsinu
Sporthúsinu
Hreyfingu
Annað

Senda mitt svar



Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf




Spjallþræðir > Sambönd > Innlegg
Spjallflokkar Til baka  
pirrr Svara » 
Höfundur Eva Hansdóttir Dagsetning 30. júlí 2010, kl. 21:05
Mig langar svo að vita hvort það séu fleiri konur í sömu sporum og ég.

Ég og maðurinn minn erum búin að vera saman í 15 ár og eigum þrjú lítil börn saman, erum þokkalega hamingjusöm saman og búin að koma okkur vel fyrir í lífinu.

En þannig er mál með vexti að mér finnst ég aldrei fá jákvæða athygli frá manninum mínum. Ég þrái að heyra hann segja að hann elski mig og að hann segi að ég sé sæt eða líti vel út, ég þrái líka að hann horfi djúpt í augun á mér og kyssi mig af ástríðu. Mig langar líka í meira kynlíf en við gerum það að metaltali 4 sinnum í mánuði.
Ég get yfirleitt sætt mig við að þetta er ekki nákvæmlega eins og ég myndi vilja hafa það og ég bæli það niður.
En reglulega þá líður mér svo illa út af þessu og finn eins og sting í hjartað og söknuð eftir einhverju, æ úff það er svo erfitt að koma þessu niður á blað ég vona að ég sé skiljanleg.

Við erum með þrjú lítil börn þannig að við höfum ekki mikinn tíma saman og erum alltaf bæði þreytt, þannig að ég skil svosem að hann geti ekki alltaf verið tilkippilegur þegar mig langar í knús, kossa eða sex, enda fáum við oft ekki frið til að gera það í friði.

Mér líður verst þegar ég er með egglos og í nokkra daga á eftir. Þá er ég með fiðring í maganum og er að drepast úr gr**** en það er eins og þá hafi hann ennþá minni áhuga á mér einhverra hluta vegna.

Ég hef reynt að tala um þetta við hann en hef ekki fengið mikinn skilning á þessu þannig að yfirleitt þá sleppi ég að tala um þetta við hann en langar helst bara að gráta og fá knús.

 
 
RE: pirrr Svara » 
Höfundur ooolafia Dagsetning 2. ágúst 2010, kl. 03:28
Hæ hæ

Veistu ég kannast alveg við þetta og held að þetta sé mjög algengt, því miður!

Karlmenn eru bara svona, í alvöru talað....svo er ekki nóg að benda þeim á þetta því það er eins og þeir hafi ekki rænu á því að bæta sig...hvað er að???!

Allavega, þú ert alls ekki ein um þessar tilfinningar en því miður á ég engar ráðleggingar þar sem ég á í svipuðum vandræðum sjálf

Gangi þér annars vel elskan;)
 
 

Spjallflokkar Til baka 





Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband