| Dagsetning |
|
26. október 2003, kl. 16:38 |
| Titill |
|
RE: ATVINNUVIÐTAL !!!!!!!!!!!!!!!!! |
Þetta er náttúrulega fáránlegt ... og á sama tíma og allt þetta feministatal gengur yfir. Stundum held ég að fólk fatti hreinlega ekki hvað það er að segja og hversu fáránlegt það hljómar. Við vitum allar að karlmaður er ekki spurður að því hver sjái um börnin þegar hann þarf að fara í viðskiptaferðir erlendis ... það þarf náttúrulega ekki að spyrja að því - nú hún sér um börnin ..... eins og hún hefur alltaf gert ! Þvílík spurning ..... !!
Svo er fólk hissa að konur séu ekki í fleiri stjórnunar- og áhrifastöðum .... þurfum við ekki að eiga við fleiri hindranir á leiðinni upp, eins og t.d. þessa .... hvernig eyrnamerkjum við svona hindrun ? Fyrirfram mótaðar hugmyndir um verkaskiptingu heimilisins ? Þröngsýni og afturhaldssemi ? Fordómar ? Ef það eru ekki konur sem geta gert 100 hluti í einu, þá veit ég ekki hver. Ég segi eins og þú .... auðvitað reddum við þessu eins og öllu öðru.
Hverju svaraðir þú ? Spurðu þau hvað maðurinn þinn starfaði við, hve langan vinnutíma og hve sveigjanlegan hann hefði ? Gerðu þau sér far um að kynna sér aðstæður ykkar og hve mikil ykkar samvinna er ?
Málið er að því meira sem maður hugsar um þetta, því fáránlegra verður þetta viðhorf .... þessi nálgun. Það eru margir karlmenn þarna úti sem styðja konuna sína af heilum hug í hennar starfi og starfsframa og gleðjast með henni og eru stoltir af henni en atvinnurekendur virðast bara ekki vera að fatta það ennþá - það er einfaldlega ekki reiknað með þeirra framlagi!
Áfram stelpur !! - Girl Power !!
|

|
Innskráning |
|
|