| Dagsetning |
|
26. apríl 2003, kl. 23:51 |
| Titill |
|
Svartiskóli- Ólafur Sindri & Ragnar |
Ég kem ekki suður um jólin!
Nei, þessi nískupúkahjörð sem kallar sig fjölskyldu mína er greinilega staðráðin í að slíta á öll bönd við soninn. Farið hefur fé betra, segi ég nú bara!
Ég er byrjaður að skreyta herbergið mitt. Nýi herbergisfélaginn minn Randver, er heiðinn að eigin sögn, og er á móti skreytingum. Þess vegna dulbý ég skreytingarnar sem venjulega hluti. Jólatannkremstúpan á vaskinum er til dæmis afskaplega vel heppnuð.
Nú ætla ég niður í mötuneyti að kveðja með gjöfum fólkið sem er á leið heim! Já ég er svo góð sál.
Kobbi.
Ég mátti til með að senda inn smá af bók sem ég ligg í kasti yfir hérna! Hún heitir Svartiskógur og Æskan gaf þessa bók út, hún er eftir Ólaf Sindra Ólafsson og Ragnar Þór Pétursson.
Bara email sem eru í anda "vinkonu" minnar og er þetta spes til þín!
Það er hvort sem er ekkert að gerast hérna þannig að þið getið ekki pirrast með réttu út af þessu!
Ég mana ykkur til að lesa þessa unglingabók!
|

|
Innskráning |
|
|