femin.is



Fréttabréf

Spjallþræðir







  Þitt útlit  
  Heilsurækt  
  Sjálfstæðar konur  
  Sambönd  
  Börn og unglingar  
  Sex  
  Gott í gogginn  
  Vefkort  
  Verslun  







Spjallflokkar
Brúðkaup
Börn og unglingar
Gott í gogginn
Heilsurækt
Hugmyndir fyrir femin
Sambönd
Sex
Sjálfstæðar konur
Þitt útlit
Meðganga og fæðing
Erfiðleikar við getnað



Könnun
Stundar þú líkamsrækt? Hvar þá?
World Class
Hress
Baðhúsinu
Sporthúsinu
Hreyfingu
Annað

Senda mitt svar



Til gamans
Hversu líklegt er ...
Mataræði könnun
Hversu kynþokkaful...
Hvernig móðir ert þú?
Hvert er næringarh...
Getur þú staðist f...
Sólarkunnáttupróf

Skoða öll próf




Spjallþræðir > Gott í gogginn > Innlegg
Spjallflokkar Til baka  
Höfundur Þúfa
Dagsetning 22. september 2002, kl. 14:28
Titill RE: kjúlli
Hér eru nokkrar einfaldar:

Salsa-kjúklingabringur

kjúklingabringur
nachosflögur (ókryddaðar)
salsasósa (medium)
mosarella ostur (eða bara rifinn venjul.)
taco krydd

Kjúklingabringur eru skornar í litla bita og steiktar á pönnu og kryddaðar með taco kryddi eftir smekk. Nachosflögur eru settar í botninn á eldföstu móti og kjúklingurinn settur yfir, salsa sósu hellt yfir (c.a hálfri krukku). Osti stráð yfir allt saman. Bakað í ofni í c.a 15 mín. eða þar til osturinn er vel bráðinn og bakaður og allt er orðið heitt. Borið fram með fersku salati og sýrðum rjóma.

Tikka Masala

2 kjúklingabringur
1 græn paprika
1 laukur
1 krukka Tikka Masala frá Madra Jaffrey

Sjóðið kjúklingabringurnar í svona 5-10 mín. Saxið papriku og lauk niður og léttsteikið á pönnu. Rífið bringurnar niður og bætið út á pönnuna. Því næst sósunni og látið krauma í 10-15 mín. undir loki við lágan hita. Borið fram með naan-brauði og hvítlaukshrísgrjónum.

Fajita kjúklingavefja

1/2 bolli majónes
1/2 bolli salsasósa
4 tortillakökur
280g. kjúklingakjöt, steikt
2 rauðar eða grænar paprikur
2 rauðlaukar

Steikið paprikurnar létt á pönnu, ásamt rauðlauk. Blandið saman majónesi og salsa í skál, sigtið mesta safann af salsanu áður. Leggið steikt grænmetið á tortillakökurnar, ásamt majónesi og salsa og kjúklingi. Rúllið upp og berið fram. Gott að hita tortillakökurnar áður.

Sælkerakjúklingur

2 dl.BBQ-sósa.
1 dl.soyasósa.
1 dl.aprikósumarmelaði.
100g. púðusykur.
50g. smjör
Steiktur kjúklingur

Einn steiktur kjúklingur rifinn niður í eldfast mót. Sósan hituð í potti og hellt yfir kjúklinginn og látið liggja í minnst 1 klst. Sett í ofn í 30 mín. við 200°C.

Terra Nova kjúklingur

1 kjúklingur
1 dós Campbell´s aspassúpa
1 peli rjómi
2 tsk. karrý
2 tsk. hvítlauksduft, (má sleppa)
1 dós grænn aspas
pastaslaufur
ostur
ritskex
salthnetur

Kjúklingurinn er steiktur, soðinn eða grillaður og síðan er hann beinhreinsaður og skorinn í bita. Pastað soðið og síðan sett í botninn á vel smurðu eldföstu formi. Kjúklingabitunum dreift ofan á pastað. Aspasbitarnir settir ofan á í formið. Súpunni, rjómanum og kryddinu blandað saman og einnig smá af aspassafanum. Blöndunni er síðan hellt yfir matinn í forminu. Muldu ritskexi og salthnetum stráð yfir ásamt rifnum osti. Bakað í ofni.





Innskráning
Nauðsynlegt er að skrá sig til þess að geta notað spjallþræði femin. Einnig er mögulegt að láta muna eftir sér svo að maður þurfi ekki að skrá sig inn í hvert skipti.

Það verður að gefa upp netfang til þess að skrá sig svo mögulegt sé að senda lykilorðið ef það gleymist.

Notendanafn* Lykilorð*

Netfang* Muna eftir mér

 Ég samþykki siðareglur femin.is spjallþráðanna*

Spjallflokkar Til baka Senda 





Gerðu femin.is að upphafssíðu
Um femin.isAuglýsingarHafðu samband