Pilates æfingar fyrir byrjendur er aðferðafræði sem styrkir, stælir og þjálfar líkamann í heild sinni. Pilates tæknin styrkir stoðkerfi líkamans, æfir alla vöðva hans og kemur af stað heilunarflæði sem eykur vellíðan. Æfingarnar eru góðar fyrir líkamlega og andlega áreynslu sem styrkir jafnvægi milli líkama og sálar. Pilates æfingakerfið er ætlað öllum aldurshópum.
Jóhann Freyr er útskrifaður þjálfari í hinni upprunalegu Pilates tækni (The Authentic Pilates Method) frá The Pilates Studio í New York. Þar naut hann þjálfunar bestu kennara í tækninni, nemenda Josephs Pilatesar. Hann er eftirsóttur kennari á Íslandi og erlendis, hefur kennt m.a. í London og í Bandaríkjunum.
Jóhann Freyr uppgötvaði Pilates tæknina eftir að hafa slasast illa í baki og hálsi. Hann segir sjálfur að með þjálfun í Pilates tækninni hafi hann náð fullri heilsu og starfskröftum aftur. Hann hefur verið atvinnudansari frá árinu 1990, unnið víðsvegar um heiminn og er í dag meðal fremstu danshöfunda Íslands.
Umsjón: Jóhann Freyr Björgvinsson
Sýnikennsla: Hjördís Lilja Örnólfsdóttir og Steve Lorenz,
Fatnaður: Ástund, Grafík: John Sheeran, Lýsing: Ingólfur Sigfússon
Kvikmyndað í Bláa Lóninu – lækningalind,
Framleiðandi: Anna Dís Ólafsdóttir
Kvikmyndataka, klipping og dagskrárgerð: Jóhann Sigfússon
Framleitt af PROFILM
Lengd: 60 min.
|

Skoða aðra mynd |